Útskrift 10. bekkinga og skólaslit Hvolsskóla
30. maí
Útskrift 10. bekkinga og skólaslit Hvolsskóla fara fram í íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli miðvikudaginn 1. júní klukkan 16:00.
Að því loknu verður 7. bekkur með hefðbundna vöfflusölu í sal skólans og rennur ágóðinn í ferðasjóð bekkjarins.
Foreldrar barna sem ætla að nýta sér skólabílana eru beðnir að hafa samband við ritara skólans í síma 488 4240 eða á gudlaug@hvolsskoli.is í seinasta lagi þriðjudaginn 31. maí.
Vorhátíð foreldrafélags Hvolsskóla
25. maí
Fimmtudaginn 26. maí kl. 16.00-18.00 verður vorhátíð foreldrafélags Hvolsskóla.
Hátíðin verður sett í íþróttahúsinu kl. 16.00.
Fjölbreytt dagsskrá, m.a. bókaverðlaun barnanna, dans og sýning á vinnu frá þemaviku nemenda.
Foreldrafélag Hvolsskóla verður með hefðbundna fjáröflun: kökuhlaðborð og grillaðar SS pylsur.
Frí andlitsmálun fyrir þá sem vilja.
Mætum öll og gerum okkur glaðan dag saman.
Foreldrafélag Hvolsskóla og Hvolsskóli
Grease æði í Hvolsskóla
25. maí
Sannkallað Grease-æði var í síðustu viku á elsta stigi í Hvolsskóla. Nemendur og starfsfólk stigsins lögðust á eitt með alla vinnu í kringum sýninguna, sáu um leikskrá, sviðsmynd, förðun og búninga. Á mánudag hófust æfingar á sviði en leikarar og hljóðfæraleikarar komu að sjálfsögðu úr röðum nemenda. Stóri dagurinn var svo á fimmtudaginn þar sem nemendur fóru á kostum. Sýningin heppnaðist einstaklega vel og einkenndist af krafti og mikilli gleði.
Skólahald þriðjudaginn 24. maí 2011
Mánudagur 23. maí kl. 17:30
Ef engar meiriháttar breytingar verða á vindátt og þar með öskufalli verður skóli á morgun þriðjudaginn 24. maí.
Á morgun hefst jarðvangsvika (geopark) í Hvolsskóla og því verður kennt í öllum bekkjum frá kl. 8:15 til kl. 13:00.
Vikan endar svo á vorhátíð foreldrafélagsins á fimmtudag milli kl. 16 og 18.
Skólahald fellur niður mánudag 23. maí 2011
Mánudagur 23. maí kl. 6:30
Miðað við stöðuna eins og hún er nú kl. 6:30 hefur verið ákveðið að fella niður skólahald í Hvolsskóla í dag mánudaginn 23. maí 2011.
Skólahald mánudaginn 23. maí 2011
Sunnudagur 22. maí kl. 19:30
Að höfðu samráði við yfirvöld almannavarna hefur verið ákveðið að athuga með skólahald kl. 6:30 í fyrramálið. Foreldrar eru beðnir að fylgjast með fréttum í útvarpi kl. 7:00 og hér á heimasíðu skólans.
Mikilvægt er að foreldrar geri sér grein fyrir eigin ábyrgð og hafi eftirfarandi ávallt í huga:
Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það (og skólabílstjórum ef svo ber við) og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Nemendaferðir í 9. og 10. bekk
22. maí
Árlegri Þórsmerkurferð 9. bekkinga sem fara átti á morgun mánudag er frestað.
Af 10. bekkingum er hins vegar gott að frétta og fór hópurinn til Kaupmannahafnar í morgun með næstsíðustu vél sem fór frá landinu.
Grease
18. maí
Frá æfingu.
Elsta stigið er nú í fullu fjöri þessa dagana að undirbúa söngleikinn Grease. Nemendur sem vildu leika hlutverk í söngleiknum fóru í það en öðrum nemendum var skipt í þrjá hópa, búningahönnun og förðun, sviðsmynd og leikskrárgerð ásamt auglýsingargerð. Hugmyndin af því að setja upp Grease söngleikinn kom frá nemanda í Hvolsskóla. Nemendur eru búnir að vera að undirbúa söngleikinn í nokkra mánuði. Sýningin hefst á morgun, fimmtudag 19. maí klukkan 20:30. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna, frítt fyrir 16 ára og yngri. Vonumst til að sjá sem flesta. Allir velkomnir.
Ari og félagar í leikskránni.
Sumargjöf foreldrafélagsins til Hvolsskóla
18. maí
Tónhlöðurnar frá foreldrafélaginu.
Í tilefni af komu sumars færði foreldrafélag Hvolsskóla skólanum að gjöf þrjá vandaða MP3-spilara. Spilararnir eru ætlaðir nemendum skólans sem ekki hafa aðgang að spilara t.d. við lestur hljóðbóka. Þeir eru skráðir á bókasafni skólans og geta nemendur fengið þá að láni. Eins og sjá má á myndinni eru þetta tveir svartir spilarar og einn gulur og sumarlegur.
Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir afar nytsamlega gjöf og hlýhug til okkar.
Háskóli unga fólksins
5. maí
Sprengju-Kári að störfum á 1. maí.
Háskóli unga fólksins kemur í Hvolsskóla á morgun í framhaldi af vísindaveislunni sem var í Rangárþingi eystra síðastliðinn sunnudag.
Námskeið sem verða kennd eru stjörnufræði, danska, kynjafræði, nýsköpun, sjúkraþjálfun, jarðvísindi og stjórnmálafræði. Hvert námskeið verður kennt bæði í eldri (8. - 10. bekkur) og yngri hóp (5. - 7. bekkur) þrisvar sinnum yfir daginn.
Dagskrá fyrir nemendur Hvolsskóla verður frá 8:15 - 14:00 á morgun föstudag. Að sama skapi seinkar heimakstri á morgun til kl. 14:00.
Kaupfélagið 80 ára - Sýning á Sveitamarkaðnum
1. maí
Í dag er opnuð sýning á Sveitamarkaðnum í tilefni að því að Kaupfélag Rangæinga átti 80 ára afmæli í fyrra, eða frá 1930-2010. Nemendur á miðstigi unnu þessa sýningu og bjuggu t.d. til klippimyndir um söguna, bjuggu til bækling, gerðu líkan af Hvolsvelli árið 1933 þegar aðeins 3 hús voru á Hvolsvelli og gerðu súlurit yfir þróun mannfjölda. Sýningin mun standa í mánuð, eða til 1. júní. Við hvetjum alla til að skoða þessa sýningu en Sveitamarkaðurinn er opinn alla virka daga frá 12-18 og um helgar frá 13-17. Þriðjudaginn 3. maí er lokað vegna jarðarfarar.
Kveðja frá öllum á miðstigi















